Lítilmannleg árás á hæfan mann með göfugt sjónarmið

Kvikmyndagerð er tvímælaust ein mesta framtíðargrein fyrir Island, eins og önnur lönd. Allt er að breytast í myndefni. Kvikmyndaskólinn er miklu meira áríðandi heldur en svokallaðir 'Háskólar´ með sína 200 lögfræðinga útskrifaða árlega til einskis gagns, nema til ama fyrir allan almennig. Bush eldri Forseti Bandaríkjanna sagði á sínum tima og mesta vandamál heimsins væru lögfræðingar og creditkort. Þráinn er aðeins á rangri hillu, eins og svo margir aðrir. Hann á að halda sig við ritstörfin. Menn bíða spenntir eftir framhaldi af verðlaunabók hans DAUÐANS ÓVISSU TÍMI´. Svona munnsöfnuður og árásir á saklausan menn eru óþolandi í landi sem vill kenna sig við menningu.

mbl.is Setur skilyrði fyrir stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er nú að ske? 69 flugvélar

Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að Icelandair eigi pantaðar fimm B787 Dreamliner flugvélar. Flugvélarnar verða þó ekki nýttar á núverandi áætlunarleiðum Icelandair. Síðan er sagt innan sviga - (Rétt er að gera hér greinarmun á ICELANDAIR og móðurfélaginu ICELANDAIR GROUP, sem rekur 69 flugvélar) Gaman væri að fé einhverja skýringu á þessum umfangsmikla flugrekstri.

Mikill og góður árangur Jóhönnu og Steingríms stjórnarinnar

Ríkistjórn Steingríms og Jóhönnu er ekki vanhæf. Menn verða að gera sér grein fyrir hver áform þeirra eru. Kommunistaflokkur Islands, seinna Alþyðubandalag og fleiri nafngiftir. enanlega Vinstri Grænir hafa bara eitt markmið, sem er Sovét Island. Þeim er að takast verkefnið bara ansi vel. Þeim hefur tekist að koma því inn hjá þjóðinni að hrunið allt, væri Ihaldinu að kenna. Fólk gerir sér ekki grein fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið það afl sem hefur skapað Islandi gott mannlíf og sess meðal þjóða. Framtíðin verður því miður eitthvað á þessa leið Gamalt blog a westurfari.blog.is Island Jóhönnu og Steingríms

Draumur Jóhönnu

Ný þjóð hefur sest að. Sjá menn ekki fyrir sér hið ´Nýja Island´ Evrópubandalagsins. Þeir Þurfa varla að leggja neitt fram. Eiga Hólmann sennilega nú þegar og fiskimiðin líka. ESB mun hefjast handa við að byggja upp ´Nýja landið sitt´ Island. Straumur fólks til landsins mun fylla yfirgefið húsnæði Íslendinga, Herstöðin verður endurbyggð á Keflavíkurflugvelli. Fiskimiðin ofnýtt af sveltandi ESB ríkjum. Olíuborpallar rísa á Drekasvæðinu. Mikill uppgangur og tilheyrandi olíuhreinsistöðvar og stórskipahafnir rísa í kjördæmi Skallagríms. Þjóðverjar tryggja sér aðgang að Norður svæðinu. Nægir peningar verða til að nýta sér gögn og gæði Gamla Fróns. Íslensk tunga mun hverfa úr daglegu tali. Herskátt fólk með aðra siði og þjóðfána hefur tekið við. Islendingar, þeir sem ekki eru fluttir burt nú þegar, eru fluttir til fjalla.

 

Loks er hér Þjóðskáldið Halldór Laxness Island 67 ár 1944-2011 - Tileinkað Ómari Ragnarssyni „

En þegar á Íslandsströnd eru risnir þýskir fiskibæir og þýsk kauptún, hve leingi mun þess að bíða að þar rísi og þýskir kastalar með þýskum kastalaherrum og málaliði. Hver er þá orðinn hlutur þeirrar þjóðar sem skrifaði frægar bækur? Þeir íslensku mundu þá í hæsta lagi verða feitir þjónar þýsks leppríkis. Feitur þjónn er ekki mikill maður. Barður þræll er mikill maður, því í hans brjósti á frelsið heima." Laxness (Eldur í Kaupinhafn. 13. kafli. Arnas Arnæus


L A N D R Á Ð Svokallaðs Stjórnlagaþings

Í 109. grein. Framsal ríkisvalds; "Heimilt er að gera þjóðréttarsamninga sem fela í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu. Framsal ríkisvalds skal ávallt vera afturkræft. Með lögum skal afmarka nánar í hverju framsal ríkisvalds samkvæmt þjóðréttarsamningi felst. Um fullgildingu slíks samnings fer samkvæmt þeim reglum sem við eiga um breytingu á stjórnarskrá þessari."

Þarna kemur skyrt fram hvert hlutverk Stjórnlagaþings Jóhönnu í raun og veru er 


Góðæri í Norvegi

Athyglisvert, Norðmenn sniðu stjórnarskrá sína eftir stjórnarskrá Bandaríkjanna er þeir hlutu frelsi undan dönum! Hefur greinilega gefist þeim vel. Bandarísk fyritæki komu jú olíuæfintýrinu í Stavanger í gang á sínum tíma.

Íslenskt vatn til Kína

Sennilega hafa islendingar misst af stóru tækifæri við að koma á viðskiptum með vatn til Kína. Fara að dæmi Kanadamanna að stofna samtök, rett eins og íslendingar gerðu um fisksöluna til Bandaríkjanna. Hér er stórmál að ræða. Vatns-átöppun er sá iðnaður sem er í mestum vexti í heiminum í dag.
mbl.is Forsætisráðherra Kína kom færandi hendi til Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukning fiskveiða og STOP á loðnuveiðar... Athugasemdir við blog Tryggva Helgasonar

Algerlega sammála þér Tryggvi. En eins og mætir menn hafa bent á, verður að hætta loðnuveiðunum, rétt eins og rússar og norðmenn gerðu. Björn Emilsson, 11.6.2011 kl. 14:41

Björn Emilsson, - ég hygg að þarna sé rétt ályktað hjá þér varðandi veiðar á loðnu. Ef ég man rétt, þá þekktist ekki fyrir fáum áratugum, að menn veiddu loðnu, nema eitthvað "smotterí" í beitu. Þá var það að einhverjum útgerðarmanni datt í hug að fá sér smáriðna nót og hann mokaði upp loðnu sem var sett í bræðslu ásamt með síldinni. Síðan þá hefur verið veitt ógrynni af loðnu. En það er ekki bæði haldið og sleppt. Fiskurinn og fuglinn étur ekki loðnu sem búið er að veiða og vinna í landi. Ég er sammála Birni, og að mínu mati þá ætti að takmarka verulega loðnuveiðar, - jafnvel að banna alveg loðnuveiðar um sinn, svo sem í eitt ár (eða tvö), og meta áhrifin á aðrar fiskiveiðar. Tryggvi Helgason, 11.6.2011 kl. 15:57

Já Tryggvi, Nauðsynlegt er að koma af staða alvarlegum umræðum um sjávarútvegsmálin. Hlustað verði á menn sem hafa vit á málinu, eins og Jón Kristjánsson fiskifræðing og Kristinn Pétursson. Sigurjón Þórðarson í Frjálslynda flokknum hefur hér verk að vinna. Að sameina sjómenn og landsmenn alla til átaka og réttrar akvörðunar. Að blogga um málið er ekki nóg. Efna verður til fundarhalda um allt land. Arangurinn mun ábyggilega ekki láta á sér standa. Björn Emilsson


Svokallað "Stjórnlagaþing" leggur til breytingar á stjórnarskránni að ósk Jóhönnu að heimilt sé að afsala sjálfstæði Islands til Fjórða Ríkisins

Krafa breta og hollendinga ætti að vekja þá landráðamenn svo og þetta svokallaða stjórnlagaþing með Omar Ragnarsson í broddi fylkingar til alvarlegrar umhugsunar hvað verði um fámenna þjóð í armi ESB. Þar verður ekkert hlustað á islendinga. Bretar sendu herskip sín á Islandsmið í þorskastríðinu, en urðu undan að síga, þegar Kissinger á NATO fundinum í Oslo sagði bretunum að hipja sig í burt og láta þessa sjálfstæðu bjargálna þjóð í friði. Það gæti farið svo að leita þyrfti aðstoðar NATO aftur, gegn þessum öfgasinnum sem vinna að því að framselja sjálfstæði Islands til Fjörða Ríkisins.

Siðasta ferðin

http://apod.nasa.gov/apod/ap110608.html

Össur fer mikinn í Silfri Egils

Össur staðfesti og fullyrti hvað eftir annað að ESB væri ekki að ásælast auðlindir Islands, hvorki sjó né land, eins og hann kallaði það. ESB hefði hreinlega ekki leyfi til að yfirtaka auðlindir. Ahugamál ESB væri einungis umhverfisvernd! Eg veit ekki betur en að það hafi komið skýrt fram hjá ESB, að við aðild félli stjórn fiskveiðanna undir ráðamenn í Brussel. Leiðréttið mig, ef ég fer rangt með.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband