14.1.2012 | 22:06
Svo er verið að svelta Kvikmyndaskólann
Kvikmyndir eru einhver mesta tekjulind sem um getur. Lesið meðfylgjandi frétt.
Contraband tekjuhæst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Nákvæmlega...
Villi Asgeirsson, 14.1.2012 kl. 22:14
Gaman að við eigum svona víkinga
Landfari, 14.1.2012 kl. 23:08
Gott að halda því til haga að kvikmyndagerðarnám og hvað þá kvikmyndagerð í Bandaríkjunum eru ekki borin uppi af ríkisstyrkjum, ólíkt því sem Íslendingar þurfa að þola.
Það, og svo að kvikmyndabransinn er ákaflega áhættusamur rekstur þar sem skiptast á stórtekjumyndir og markaðsleg flopp. Fyrir hverja mynd sem halar inn milljörðum eru tuttugu sem selja lítið sem ekkert.
Sama hvernig á það er litið þá er kvikmyndagerð sennilega það síðasta sem ætti að láta almannafé koma nálægt.
Promotor Fidei, 15.1.2012 kl. 00:46
Ríkisstjórnin ætti bara að ráða Coen bræður til þess að kíkja yfir handritin áður en það er fjárfest. SPRELLLL
Bjössi (IP-tala skráð) 15.1.2012 kl. 02:01
Íslenskur kvikmyndaskóli á að styrkja íslenska kvikmyndagerð, það er ekkert íslenskt við Contraband, þó svo að leikstjórinn sé Íslenskur. Myndin er byggð á spenndumyndastíl sem er þekktur fyrir að selja vel í Bandaríkjunum. Og hvernig tengist þetta fjármagni til íslenska kvikmyndaskólans? Íslenska ríkið, íslenskir kvikmyndasjóðir og kvikmyndaskólin græða ekkert þó svo að þessi mynd sé tekjuhæsta mynd Bandaríkjana.
Einar (IP-tala skráð) 15.1.2012 kl. 02:14
Ekkert íslenskt við Contraband!? Reykjavík-Rotterdam var nú ekki það slæm mynd að við þurfum að afneita henni!
Karl J. (IP-tala skráð) 15.1.2012 kl. 02:32
Karl, tengingin mín á við um fjármögnun og framleiðslu myndarinnar, eins og þessi blogg-grein talar um.Contaband var framleidd og fjármögnuð alfarið í Bandaríkjunum og af bandarískum framleiðendum og stúdíói. Það gerir hana Bandaríska mynd. Reykjavík-Rotterdam er önnur mynd og er íslensk, þær eru ekki að sömu myndunum þó hin sem byggð á henni. Ég sé ekki tengingu milli fjármögnunar kvikmyndaskóla Íslands (úr ríkissjóði) og kvikmyndarinnar Contraband.
Einar (IP-tala skráð) 15.1.2012 kl. 06:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.