2.6.2009 | 23:09
Kínverjar komast í feitt
Hummerinn er aðalfarartæki Bandaríkjahers í streði þeirra í Mið Austurlöndum
Kínverjar kaupa Hummer | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Götubíllinn Hummer frá GM er alls ekki sama faratækið og herbíllinn Humvee sem er framleiddur af AM General fyrir bandaríska varnarmálaráðuneytið. Kínverjar framleiða reyndar eftirlíkingar af HMMWV nú þegar! En núna verður malbiks-Hummerinn líklega bara gerður að útflutningsvöru til að selja okkur vesturlandabúum. Ef þú ert hinsvegar stoltur Hummer-eigandi með tröllatrú á þínum "fjallabíl", þá mana ég þig til að láta varpa honum aftan úr Hercules C-130 flutningavél í 30m hæð á 250km hraða og athuga svo hvort þú getur ekki ekið honum gegnum 1,5m djúpt vatn án þess að drepa á vélinni. Ef það verður svo mikið sem heilt þurrkublað eftir af honum þá færðu verðlaun!
Guðmundur Ásgeirsson, 3.6.2009 kl. 00:34
Er bíllinn verri fjallabíll þótt ekki sé hægt að varpa honum úr flugvél?
Það er alveg eins líklegt, að það sem gerir bíl "varpanlegri" úr flugvél geri hann að verri fjallabíl.
Kári Harðarson, 3.6.2009 kl. 09:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.