Ísland alltaf Ísland

Lýðveldið Island var stofnað á Þingvöllum árið 1944. Sú ákvörðun hefur reynst islendingum vel. Lýðveldið ISLAND er í röð fremstu þjóða heims. Nú á 68 aldursári Lýðveldisins berjast öfl um sjálfstæðið eða framsal þess til Stór-Þýskalands. Hver hefði trúað því?. 

Grímsstaðir, Lhasa og Tibet járnbrautin

Hér má sjá http://www.chinatibettrain.com/tibetanplateau.htm - hvernig kinverjar fara létt með framkvæmdir, ekkert mál að breyta samgöngukerfi Islands. Það liggur í augum uppi, að tengja þarf fyrirhugaðan Grímsstaðar-flugvöll við Reykjavík og stórskipahöfnina á NA-landi. Þeir hjálpuðu líka til á sínum tíma lagningu bandarísku járnbrautarinnar til vesturstrandarinnar. Nú standa þeir í stórræðum við lagningu járnbrautar frá Kína til Evrópu.

Islandsklukka Laxness á Rúv 1

Vil vekja athygli á að unnt er að hlusta á Íslandsklukkuna á Rás 1 vefnum, í útfærslu Þjóðleikhússins við opnun þess. Útsendingin var sl laugardag þ. 20. fyrri hluti og seinni hlutinn í gær laugardag 28. Íslandsklukkan er holl lesning fyrir unga sem aldna og sérstaklega fyrir þé sem trúa því að Lýðveldinu Islandi sé betur borgið í höndum útlendinga, dönskum og þýskum.
mbl.is Samanburðarleysi háir Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínverjarnir komu og fóru með glæsiblæ, og stálu glæpnum frá Stefáni Fúla

Nú er þetta allt að koma fram. Rýmileg vinnuaðstaða þegar til staðar í stórri sendiráðsbyggingu í Reykjavík. Eru þegar komnir í útgerð suður með sjó. Kaupa sennilega Hörpuna, sem er hálf kínversk hvort sem er, og reisa stórhótel á lóðinni. Stórskipa umskipunar-fríhöfn er á döfinni, vegna viðskipta þeirra við ESB.  Komið verður upp ´Norður-slóða´ bækistöð vegna vinnslu olíu á Drekasvæðinu með tilheyrandi ´stassion´ og olíuhreinsistöð í kjördæmi Skallagríms. Höfuðbækistöðvarnar verða reistar á Gimstöðum á Fjöllum, með alþjóðaflugvelli í beinu vegasambandi við Langanes og Reykjavík. Löndunarbann ESB hefur enga þýðingu. Kínverjarnir koma til  með að kaupa allt fiskmeti islendinga. Rétt eins og rússarnir gerðu í þorskastríðinu. Þá ætla þeir að stórauka starfsemi sína á Norðurtanga. og í sambandi við það, staðsetja  kjarnorku-kafbáta stöð í Hvalfirði og nýta Keflavíkurflugvöll í hernaðartilgangi. Kínverjar  eru friðsamir og prúðir menn og láta lítið fara fyrir sér. Ibúafjöldi Islands verður amk 1 milljón innan 10 ára. Menn segja kannske sem svo að þetta sé tóm þvæla. Ég bendi þá á umsvif kínverja í Bandaríkjunum. Þeir eru langstærstir fjárfesta þar, með meir en 75% af erlendri fjárfestingu. Eiga nú þegar flestar hafnir landsins. Hafa rústað mestöllum smáiðnaði og flytja heilu verksmiðjurnar til Kína. Sama er að eiga sér stað í Svíþjóð og Italíu og víðar. Nóg um það. Veri þeir velkomnir. Þeir eru komnir til að vera. Kína er sennilega betri lausn en ESB.

Ólikt skemmtilegri heimsókn en ESB skrýmslið

Leiðrétting, afsakið villuna

Ólíkt skemmtilegri heimsókn and ESB skrýmslið

Kínverjar eru velkomnir og koma fram eins og siðuð þjóð. ESB skrýmslið afturámóti veður uppi með yfirgang og ofbeldishótanir og þaðan af verra, verði ekki farið að vilja þeirra í einu og öllu.
mbl.is Gullfoss skartar sínu fegursta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Katrín kaþólskari en páfinn

Steingrímur hefur aldeilis heilaþvegið varaformanninn sinn. Hún vill halda áfram viðræðum þrátt fyrir árásir ESB og hótanir. Virðist alls ekki gera sér grein fyrir alvöru málsins.
mbl.is Gæti haft áhrif á aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flying High

http://apod.nasa.gov/apod/ap120419.html

Formannsefni Samfylkingarinnar

Katrín litla er nösk. Nú sér hún í hendi sér tækifæri að verða formaður Samfylkingarnar og slá þarmeð Steingrími J ref fyrir rass og bjarga sjálfri sér fyrir horn.

mbl.is Vill kosningabandalag VG og Samfylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorskur og Tómatar á Húsavík

Þorkskvótinn er 160 þúsund tonn og skilaði 40% af þjóðartekjum. Reikningsglöggir geta reiknað út þjóðartekjur af 500 þúsund tonna þorskkvóta, eða jafnvel milljon tonna. Er ekki hætt við allar búksorgir hyrfu eins og dögg fyrir sólu. Vísa til að Norðmenn, Rússar og Bandaríkin juku fiskveiðikvótann í milljón tonn. Svo eru það tomatarnir. Væri ekki ráð fyrir Húsvíkinga og aðra norðanmenn að skoða áætlanir sunnanmanna um stórtæka tómatarækt á Hellisheiði.

Það er löngu kominn tími athafna. Rétt eins og þegar síldin hvarf á sjötugasta áratugnum. Þá brást Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, - sá eini og sanni -, við og sneri vörn í sókn með að stuðla að stóraukinni framleiðslu á frystum fiski til Bandaríkjanna. Þá hófst eitt mesta framfaraskeið á Islandi.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband